![]() Íþróttamiðstöðin í Laugardal - Engjavegi 6 - 104 Reykjavík |
| AFREKSSTEFNA KARATESAMBANDS ÍSLANDS 2012 - 2014. |
Karateíþróttin er að mestum hluta stunduð í félögum á höfuðborgarsvæðinu og eru félögin í dag Þórshamar, Karatefélag Reykjavíkur, Breiðablik, Fylkir, Haukar, Víkingur, Fjölnir og Afturelding. Utan höfuðborgarsvæðisins eru karate stundað á Akranesi, Selfossi, Akureyri og í Hveragerði. |
Markmið Karatesambands Íslands fyrir afrek á erlendum vettvangi er eftirfarandi: Að stefna að því að eiga keppendur í átta manna úrslitum á Evrópu- eða heimsmeistaramótum og eiga keppendur í verðlaunasætum á sterkum eða millisterkum alþjóðlegum mótum. Þetta á hvoru tveggja við um unglinga og fullorðins keppendur. |
Það sem háir íþróttinni á landsvísu er fyrst og fremst þjálfaraskortur. Nánast allir þeir þjálfarar sem eru hærra gráðaðir (svart belti eða hærra) eru búsettir á höfuðborgarsvæðinu. Íþróttina er hægt að stunda við mjög einföld skilyrði þ.e. aðstaða í flestum íþróttasölum landsins er fullnægjandi. Karateíþróttin hefur verið í örum vexti undanfarin 25 ár. Á Íslandi eru stundaðir að mestu 3 stílar karate, og hefur það áhrif að nýtingu á þjálfurum. Þ.e. það er ekki eins auðvelt að samnýta þjálfara á milli karatestíla. Nokkur félög hafa farið út í það að sækja kennara erlendis frá og hefur það reynst mjög vel. Það er hins vegar mjög kostnaðarsamt og ekki allir sem hafa ráð á því. Lengst framan af voru aðeins fá mót sem iðkendur gátu keppt á. Með tilkomu nýrra móta sem KAI hratt af stað, þ.e. Bikarmótaröð fullorðinna sem eru 2-4 yfir árið og var farið af stað með árið 1996, sem og bikarmótaröð unglinga (12-17 ára) sem fyrst var keppt á árið 2006, hafa keppendur öðlast mun fyrr keppnisreynslu sem þeim er svo nauðsynleg þegar komið er á erlend mót. Sífellt stækkandi hópur íslenskra keppnismanna hefur sótt alþjóðleg mót undanfarin ár og náð þar ágætis árangri. Yngri keppendur eru farnir að sækja alþjóðleg mót í mun ríkari mæli, og verða þannig mun betur í stakk búin til að ná árangri á erlendri grundu en áður hefur þekkst. |
Afrek telst vera að komst í fimm manna úrslit á sterkustu opnu alþjóðamótunum, (Opna enska, franska, þýska, hollenska o.s.frv.), 1-3 sæti á millisterkum mótum, þar með talið Norðurlandamót, í átta manna úrslit á Evrópumótum og 16 manna úrslit á heimsmeistaramótum, hvort sem um er að ræða unglingamót eða fullorðins. |
• Innan KAÍ skal starfa Landsliðsnefnd, kosinn af stjórn KAÍ, til að halda utan um landsliðsmál. |
Karatesamband Íslands fer með málefni íþróttarinnar gagnvart ÍSÍ og er aðili að Karatesambandi Evrópu (EKF) og Alþjóða karatesambandinu (WKF). Landsliðsþjálfari í samvinnu við landsliðsnefnd ber ábyrgð á að fylgja stefnu sambandsins í þeim málum sem honum er úthlutað. Hann sér um að undirbúa keppendur fyrir þau verkefni sem á undan hafa verið talin og ná þeim markmiðum sem koma fram í afreksstefnunni. Val á keppendum er undir honum komið og vinnur hann í samvinnu við landsliðsnefnd KAÍ hverju sinni. |
Til að komast í landslið Íslands í karate þurfa keppendur að uppfylla eftirfarandi skilyrði: A Landslið,
Keppandi hefur keppt á a.m.k. þremur alþjóðlegum mótum í sínum flokki (aldur/þyngd) með 10 eða fleiri þjóðum. B landslið,
Keppandi hefur keppt á a.m.k. einu alþjóðlegu móti í sínum flokki (aldur/þyngd) með 5 eða fleiri þjóðum. C hópur,
Keppandi vinnur sjálfstætt í æfinga- og keppnisáætlun sinni og fer reglulega yfir hana með landsliðsþjálfara/landsliðsnefnd. |
Verkefni 2012
Tvö opin mót á norðurlöndum með styrk fyrir A, B og C landsliðshópa........ 800 þús. Verkefni 2013
Tvö opin mót á norðurlöndum með styrk fyrir A, B og C landsliðshópa. ...... 800 þús. Verkefni 2014
Tvö opin mót á norðurlöndum með styrk fyrir A, B og C landsliðshópa. ...... 1.000 þús. |
Landsliðsþjálfari/landsliðsnefnd skilar stjórn KAÍ skýrslu á ári hverju þar sem síðasta ár er skoðað með tilliti til árangurs, eftirfylgni og áætlana. Landsliðsnefnd og stjórn meta stöðuna og halda eða breyta áætlunum hverju sinni. |
Stjórn KAÍ hefur alla umsjón og ber ábyrgð á afreksstefnu sambandsins. Beinir aðilar að afreksstefnunni eru: Stjórn KAÍ, landsliðsnefnd, sérþjálfarar, karatefélögin og keppendur. KAÍ skal kynna keppendum hlutverk þeirra og væntingar sem gerðar eru til þeirra sem valdir eru í landslið sambandsins. KAÍ skal vinna að því að virkja það fólk sem kemur að afreksstefnunni, til að vinna jafnframt með hóp ungra og upprennandi afreksmanna. |
| Samþykkt af stjórn KAÍ þann 12.jan. 2012 |